No rain, No Rainbows!
05.07.2007 17:03:58 / kebabb

5. júlí

Jæja nú hefur maður engan tíma til að hanga í tölvunni lengur. Allur tími fer núna í að sjá um litla gæjan sem er ekkert slæmt. Það er hægt að hanga tímunum saman og horfa á hann. Hann hefur samt ekkert verið mikið fyrir að sofa út í eitt eins og nýfædd börn. Hann er of upptekin að uppgötva heiminn í kringum sig. Svo er hann rosalega duglegur og heilbrigður og sagði læknirinn og ljósmóðirinn að hann væri fullkominn. Hann er orðin rosalega duglegur í að reyna að halda haus og svo finnst honum gaman að gera sogbletti á pabba sinn þegar hann finnur ekkert brjóst að sjúga á honum. Svo er hann líka mikið fyrir það að pissa á mann þegar er verið að skipta á honum, eins og í morgunn pissaði hann all hressilega á náttbuxurnar mínar.:lol:

Við litla fjölskyldan fórum seinustu helgi í villuna/kastalann sem fjölskyldan mín er með í leigu hérna. Var kastalinn rosa flottur með inni sundlaug, heitum pott, sána og pool borði. Og fékk þá litli gæjinn tíma með nýbökuðum ömmu og afa sínum, sem honum líður rosalega vel hjá.

Svo breytti ég fluginu mínu í gær og komum við heim í næstu viku, það er að segja 13.júlí. Geir kemur í heimsókn í næstu viku og fer heim 13. með icelandexpress, þannig að ég ætla að nýta mér það og fara heim um leið og hann.

Þannig að allir fá að sjá gæjan næstu helgi og erum við orðin rosalega spennt að koma heim. Ég var að láta nýjar myndir á barnaland og ég mun laga barnalandssíðuna hægt og rólega þegar ég hef tíma.

Sjáumst í næstu viku:haha:

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 15:44:15 / kebabb

Litill drengur

Þá er ég búin að þessu og fæddi þennan rosalega sæta gæja á sunnudaginn.

Okkur líður öllum vel og komum heim í dag. Honum lá svo á að koma fljótt og snemma í heiminn að hann kom þremur dögum fyrir tíman og aðeins á minna en 6 klukkutímum, sem er alveg ótrúlegur hraði. Hann var 13 merkur og fullkominn. 

Þetta verður bara stutt hjá mér núna því ég er svo þreytt og nú eru komnar myndir af honum á barnaland:D

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 13:32:44 / kebabb

Ennþá ólétt

Núna eru bara 10 dagar í settan dag, þetta er allt að fara að gerast vonandi:lol: Góða veðrið úr seinustu færslu er búið og segi ég bara guði sé lof. Það var svo heitt að ég og Siggi þurftum að fara í kalda sturtu eina nóttina til að reyna að kæla okkur. Það versta var að þá ákvað klósettsetan okkar að springa í tvennt af engri ástæðu. Hélt ég því fram við húsvörðin að henni hafði orðið of heitt greyinu.;)

Í gær fórum við á 17 júní hátíð sem er haldin af Íslendingunum sem búa hérna. Það var hellirigning allan daginn og þegar við komum voru örugglega bara um 20 manns á staðnum. Þannig að við stoppuðum mjög stutt og náðum að kaupa okkur 2 íslenskar malt á samtals 600 kr.:( Ég veit ekki hvort einhver hefur keypt sér svona dýrt malt áður en það var samt þess virði.

Annars er Siggi núna að taka tennur. Einn endajaxlinn ákvað allt í einu að láta sjá sig og vaknaði hann í morgun frekar bólgin greyið, þannig að við þurfum að fara að vinna í því að finna tannlækni handa honum.:whut:

Svo þarf ég líka aðeins að blóta fæðingarorlofssjóði, en þeir eru að gera lífið mitt leitt þessa dagana. Vil ég bara kalla þá nískupúka og ég er ekki alveg viss um að þeir viti alveg hvað þeir eru að gera þarna.

Svo er öll stórfjölskyldan að fara að koma til Danmerkur næsta laugardag og verða þau í ca. 1,5 tíma fjarlægð frá okkur í 2 vikur í villu sem er búið að leigja. Ég hlakka rosalega til að hitta þau öll, það er komið svo langt síðan eða næstum því hálft ár síðan ég sá þau síðast.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 14:37:57 / kebabb

Það er alltof heitt

Núna sit ég inn og horfi á góða veðrið úti:( Ég er svo brunnin að ég get ekki notið 28 stiga hitans sem er úti núna. Hérna sit ég kósveit við tölvuna og nágranni minn er að teikna mig. Hann er í listnámi og langaði svo að teikna mig í dag og ég er alveg að farast úr meiglunni.

Ég og May fórum á ströndina í gær og brunnum svo rosalega aðeins á annari hliðinni. Þannig að við lítum út eins og homblest kex. Það er æðislegt að hafa hana til að drepa tíman því Siggi er aftur byrjaður á fullu í skólanum í júní kúrsnum sínum. Hann greyið þarf líka að hanga inní skólanum þannig að ég ætti ekki að kvarta.

Svo kom mamma í gær í gisti hjá mér en er farin aftur og kemur aftur og gistir hjá mér á laugardaginn. Er hún hérna vegna vinnunar og kom hún með fulla ferða tösku af barnadóti sem hún og systir hennar Signý hafa verið svo duglegar að kaupa. Er það frábært fyrir mig þar sem ég á nánast enga peninga og þetta endar með því að ég þarf ekki að kaupa neitt:haha: Takk kærlega Signý fyrir allt dótið.

Annars er ég og Siggi að farast úr spenningi þessa daganna og nennum ekki að býða lengur eftir þessu barni. Ég er alltaf að vonast til þess þegar ég fer að sofa að ég vakni með alveg rosalega hríði:haha: Svolítið klikk en mér hlakkar til þess frekar en hvíð þess. Stundum held ég að það ætli nánst að rífa sér leið útúr maganum mínum, en ég vona að það viti nú hvaða leið það fer út.:haha: Annars eru bara 19 dagar í settan dag og vona ég að ég þurfi ekki að býða lengur en það. Ég læt kannski nýjar bumbumyndir seinna í dag eða á morgun.


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 13:06:41 / kebabb

Skemmtileg helgi

Jæja það var nóg að gera þessa helgi.
Siggi fór að sigla á föstudaginn og kom heim á laugardaginn og við fórum svo út að borða um kvöldið með pabba hans, bræðrum hans Einari og Sveinbirni, Lísu og Dodda. Á meðan við vorum að borða sá ég allt í einu konu sem var alveg ofboðslega lík mömmu hans Sigga. Ég reyni að pota í Sigga og Einar sér einhvern fyndin svip á mér og ég segi "mamma" eitthvað og hann hélt að ég væri að tala um mömmu mína. En þarna var hún María (mamma hans Sigga) mætt með systur hans Ásgerði og Heiðari. Höfðu þau bara ákveðið samdægurs að koma til Köben, því þeim leiddist, og koma okkur á óvart. Og var rosalega gaman að fá þau í heimsókn. Fengu þau að gista hjá okkur það kvöld.

Það sem var gert um helgina:

*Farið á Københagen Jazz house og verið fram á nótt

*Chillað í bátnum

*Labbað um Köben og stoppað á börum

*Spilað borðfótbolta og auðvitað var ég alltaf í sigurliðinu:haha:

*Farið í Tivolíið

Á mánudaginn fór Siggi með til að sigla bátnum á sinn stað og ég svaf nánast allan daginn. Ég er orðin svo ólétt að ég verð svo þreytt eftir smá action.:$

Svo í gær fórum við Siggi í annað skipti á foreldrafræðslu námskeið. Seinast löbbuðum við út því það var svo leiðinlegt en við kláruðum nú þetta því það var verið að tala um fæðinguna sjálfa. Við vorum í sal með yfir hundrað manns og var alveg næstum ólíft af hita. Og vorum við yngst þarna inni, ég er alltaf lang yngst þegar ég fer til ljósmóðurinnar eða upp á spítala. Danir eru orðnir svo gamlir þegar þeir eignast fyrstu börnin sín að þetta er að verða vandmál hérna. Maður hefur lesið að það er verið að hvertja dani til að eignast 3 börn því það er farið ligguð við að vanta börn í borgina.

Ég var að láta nýjar bumbumyndir inn og könnun líka hérna á hliðinni:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 13:44:54 / kebabb

Sigling

Það sem er að frétta frá Köben er að ég og Siggi fórum í gær að sigla í 4 tíma með pabba hans. Ég læt alltaf eins og ég sé ekkert ólétt og geri bara það sem mér dettur í hug að gera;). En það var svakalega gaman og sigldum við til flugvallarhafnarinnar. Það var rosalega gaman að fá að sigla undir stóru farþegaflugvélarnar sem voru að fara að lenda.:lol: Manni leið eins og þær hlitu að klessa á seglin. Svo treystu þeir mér til þess að stýra aðeins bátnum á meðan þeir settu seglin upp og niður. Ég vissi ekki alveg hvað ég var að gera og átti bara að sigla áttina að einhverjum punkti, en það hafðist.


Image and video hosting by TinyPic

Image and video hosting by TinyPic


Svo í gær hélt ég bara að barnið ætlaði að fara að koma því ég var alveg að drepast í grindinni. Var það ekki vegna siglingarinnar, heldur þurfti ég að asnast til að hlaupa aðeins til að ná strætó og var alveg að drepast eftir það. Það er einhvað að taka langan tíma hjá mér að fatta að ég er ekki jafn spræk og vanalega:) En mér líður betur í dag og veit að mér mun líða ennþá betur á morgun ef ég tek því bara rólega.

Svo á föstudaginn og laugardaginn er Siggi að fara að sigla meira. Eru bræður hans og fleiri að fara að koma til Danmerkur og sigla með.

Annars er það að frétta af bumbubúanum að hann/hún er alltaf jafn spræk/ur. Það er verið að sparka í mig allan liðlangan daginn og svo finn ég vel fyrir þegar það hikstar núna.:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 12:41:55 / kebabb

Þá er það ákveðið

Ég kem heim 17 júlí. Mamma hringdi fyrir mig í flugfélagið og það var nóg að skrifa óskýrð/ur Sigurðsson/dóttir og bulla kennitöluna. Kennitlann verður löguð þegar barnið fæðist. Svo var ég rétt í þessu að klára að bóka flug fyrir May vinkonu mína til Íslands 20 júlí. Hún ætlar að koma í heimsókn í viku áður en hún flytur aftur heim til sín í Ísrael. Þannig að það verður nóg að gera. Nóg af hlutum að hlakka til fyrir.

Nú er ég komin í langþráða fríið mitt og þá er bara skýta veður:( Geðveik rigning og ég nenni ekki að fara út í búð að kaupa fisk í þessu veðri. Við erum að reyna að hafa fisk einu sinni í viku en það gengur svona upp og niður.:$

Ég sá mjög fyndna auglýsingu hérna í kolleginu um daginn. Það er verið að leita af fólki í að vinna við toppless cleaning. Já gott fólk þú getur núna fengið konu/man sem þrífur fyrir þig ber að ofan:haha: Og það stóð stórum stöfum að þetta hefði ekkert með kynlíf að gera. Ég hef verið að pæla í að senda Sigga í þetta, góður aukapeningur eða um 4000 kr. á tíman. Það væri ekki verra að horfa á hann beran að þrífa, ég er bara ekki viss um að hann myndi þrífa það vel, en kannski er það aukaatriði.:haha: 


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 13:06:57 / kebabb

Próf og Eurovision

Halló halló:D

Loksins er ég að fara að hætta í skólanum. Það er búin að vera rosalega gaman en mér hlakkar til í komast í frí og ætla ég bara að fara að taka því rólega. Það er alltaf að styttast meira og meira í þetta. Þarf bara að bíða til lok næsta mánaðar.:lol: Ég er reyndar búin að ákveða að ég vilji fæða 20 júní. Virkar það ekki þannig annars. Nei djók, en allir mega hugsa það sama og ég, þá kannski rætist óskin.
En í dag tók ég lokaprófið mitt í dönsku og gekk bara vel. Fæ að vita í næstu viku hvort ég náði. En ég veit að það er ekki séns að ég fari að falla því ég er svo klár:haha:

 

Image and video hosting by TinyPic


Í gær hélt ég smá Eurovision partý með vinkonum mínum Kristínu og May. Elduðum við góðan mat og köku og svo bættust við Siggi og Maggi vinur hans. Það var samt ekki mikið horft á sjálft Eurovison, aðalega var horft á íslenska, ísraelska og danska atriðið. Þetta er svo leiðinleg keppni að það var valla horft á hvaða lönd komust í gegn. Hverjar eru líka líkurnar á því að Ísland komist einhvern tíman í gegn.:^) Kannski er einhvað samsæri í gangi því ég reyndi og reyndi að hringja og kjósa ísland en atkvæðin mín komust aldrei í gegn, þannig að ég reyndi að senda sms og það virkaði ekki heldur.

En annars er það að frétta að ég sef ekki mikið á næturnar lengur og er þá gott að hafa Sigga til að skemmta mér á nóttinni. Er ég þá að tala um þegar hann talar uppúr svefni. Um daginn heyri ég hann muldra einhvað á öðru tungumáli og spyr hann hvort hann sé að tala dönsku.

Hann segir: já, jeg var på internettet og så billeder.

Ég segi: Hvað ertu að bulla, geturu ekki talað bara íslensku við mig

Hann: nei, jeg var på internettet og så fire billeder. De var 2 før og 2 nu. Svo muldraði hann aðeins meira og fór svo að hlæja. Á þeim tíma er hann að uppgötva að hann var að tala upp úr svefni og fer bara að sofa eins og ekkert sé.:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 12:04:24 / kebabb

Góða veðrið farið

Hej hej

Margt hefur drifið á daga mína undanfarið. Sólin er því miður farinn og nú byrjar örugglega hið skemmtilega rigningar tímabil sem er svo oft hérna í Danmörku.:S En helgin var alveg æðisleg, það var svo sjúklega heitt. Það hafði ekki verið svona heitt í Danmörku á þessum tíma árs síðan á víkingaöld. Ég vona bara að það komi aftur svona gott veður svo ég verði sem brúnust fyrir fæðinguna.

Þannig að það var gert helling um helgina. Eins og til dæmis fór ég með Kristínu á Bakken, ég og Siggi fórum í grillveislu hjá kolleginu og héngum aðeins með Íslendingunum hérna á kolleginu líka.

Annars er maður líka búin að vera að vesenast mikið. Það þarf svo mikið að gera áður en maður flytur heim og fæðir barn. Endalaust af pappírum sem þarf að redda og svoleiðis leiðilegt. Eins og í dag fór ég að reyna að redda einhverju sem heitir e-104 vottorð og var að reyna að útskýra á dönsku hvað það var, þó ég viti sjálf eiginlega ekkert hvað það er einu sinni. Og svo sendi ég endalaust af e-mailum þessa dagana með alskonar spurningar en fæ ekki svo mikið af svörum til baka. Ætlaði til dæmis að kaupa mér far heim fyrir mig og barnið, en ég þarf að skrifa nafnið á barninu til að panta. Ég veit ekkert hvað barnið á að heita og skrítið að ákveða það núna. Þannig að ég sendi fyrirspurn um þetta, en fæ ekkert svar. Veit einhver einhvað um þetta af ykkur sem lesa bloggið mitt.??

Ég var svo að láta nýjar bumbumyndir inn og bumban er orðin frekar stór. Svo vorum við að kaupa vagn og barnastól og fynnst mér það allt svo rosalega spennandi.;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 17:12:57 / kebabb

28.apríl

Barnaland er aftur komið í fullt gang hjá mér, vegna þess ég á svo yndislega ömmu sem borgaði ársgjaldið fyrir mig því hún vildi ekki að ég hætti með síðuna:D. Þannig að það eru komnar myndir af risastóru bumbunni frá því í gær.

Það var alveg geðveikt veður í gær og náði ég að fá alveg rosalegt bol far.:D Ég og Kristín vorum lengi út í sólinni í Kongens Have að spjalla við dönsku kennara um reynslu okkar á dönsku kennslu á Íslandi. Þessi kona er að fara að halda fyrirlestur eða hjálp einhverjum Íslenskum kennurum með hvernig er hægt að bæta dönsku kennsluna á Íslandi. Vona ég að hún geti einhvað hjálpað þessu liði heima til að gera dönsku kennslu jafn skemmtilega og hérna.

Image and video hosting by TinyPic

Einnig átum við m&m og lærðum

Image and video hosting by TinyPic

Þarna er ég alveg að grillast, eða brenna.:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 18:21:59 / kebabb

Rugludallur

Hej hej

Kannski eins og sumir hafa tekið eftir þá er ekki lengur hægt að fara inn á barnalandssíðuna mína. Þannig er mál með vexti að það kostar víst að vera á barnalandi. Ég er bara svo vitlaus að ég er örugglega sú eina sem vissi það ekki. Þannig að 30 daga prufutímabilið mitt er búið:whut: Þar sem maður er í miðjum vagnakaupum og fleira, þá tími ég ekki að borga þetta.:$ En ekki örvænta góða fólk. Ég ætla bara að búa til myndasíðu eins og ég hef gert hér áður og mun ég reyna að koma henni upp um helgina með nýjum myndum.:D

Þetta blogg verður stutt vegna þess ég á eftir að læra alveg fullt:cry: Ég og Kristín ákváðu að fara í bíó í staðinn fyrir að læra.

Vejret de kommende dage i København og Nordsjælland

Vildi bara sýna ykkur veðurspána fyrir vikuna. Er svona gott veður heima?


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 11:41:52 / kebabb

Afmælisdagur

Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli hann Siggi
Hann á afmæli í dag
Image and video hosting by TinyPic
Til hamingju með daginn sæti strákur
Loksins ertu orðin jafn gamall og ég;)
 
Greyið afmælisbarnið er núna í skólanum, en ég ætla að vera búin að baka eplaköku handa honum áður en hann kemur heim. Óskið mér góðs gengis því ég kann ekkert að baka svoleiðis köku. Ég vona bara að hún verði æt:$

» 7 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 14:19:36 / kebabb

17.apríl

Ooo sólin ákvað að fá sér kvíld. Ég var farin að halda að ég byggi á Spáni.

Núna á bara að vera undir 10 stiga hiti í heila viku og einhvað af rigningu líka. Ekki er ég ánægð með það:(. Ég og Siggi vorum að verða svo rauð og sæt;)       Ég er næstum búin að búa á svölunum hjá mér seinustu daga. Fer ég alltaf út á hlýra bol og stuttbuxum, en Dönunum fynnst greinilega veðrið ekki jafn gott og mér. Þeir voru reyndar farnir að vera léttklæddir seinustu tvo daga en áður voru þær hræður sem sáust á svölunum kapp klæddar. Svona erum við Íslendingar ruglaðir, eða bara kannski ég.:$
Kristín vinkona kom á sunnudaginn og sólaði sig með mér. Og er ég orðin svo heimilisleg að ég bakaði pönnukökur handa okkur. Svo í gær tók ég May vinkonu mína í auka tíma í dönsku, já svona er ég klár.(Not) Ég er svo klár að ég þarf ekki að skilja málfræðina, ég segi alltaf bara að þetta hljóði rétt svona. En kennarinn er ekki svo ánægður með það svar. 

Eftir skóla í dag sátumst ég, Kristín og May í garð nálægt skólanum og höfðum það huggulegt. Svo fórum ég og Kristín á kaffi hús að læra. Núna er Siggi í skólanum og svo fer hann á æfingu þannig að ég þarf að fara að leita mér af einhverju að gera og hætta að hánga svona í tölvunni.

 Adios

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 14:35:36 / kebabb

13.apríl

Það er bara strax komin föstudagur. Ég er orðin svo löt að blogga, en hér kemur eitt því ég þurfti að taka mér smá pásu frá góða veðrinu svo ég breytist ekki í kolarmola.

Vikan hjá mér er búin að vera rosalega fljót að líða, því Gyða var í heimsókn. Alltaf þegar fólk er í heimsókn þá líður tímin allt of hratt. Gyða kom mánudagskvöldið eftir að hún var búin að heimsækja Guðrúni í Odense. Á þriðjudaginn var ekkert spes veður þannig að við fórum í Fields að versla. Svo á miðvikudaginn var mikið labbað og skoðað. Meðal annars skoðuðum við Kristjaníu, fórum bátsferð um sýkin og fórum í turn til að sýna Gyðu alla Kaupmannahöfn. Gyða varð mjög blaut eftir bátsferðina, því það var smá rok og allt vatnið fauk aðalega á hana.Híhí. Í gær var geggjað veður og fórum við tvær í Kongens Have með teppi, ís og sleiktum sólina. Svo var það bara kaffi hús og labbað Strikið. Það var mikið spilað "manna" og hlegið og horft á fótbolta(sem var Sigga að kenna)
Gyða hló sérstaklega mikið að því þegar ég gleypti tyggjóið mitt og Siggi fór að hafa áhyggjur af því að það myndi stífla naflastrenginn til barnsins:lol:. Svo fór Gyða heim í morgun. Takk kærlega fyrir heimsóknina.

Image and video hosting by TinyPic

 

Það eru komnar nýjar bumbumyndir


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 18:03:51 / kebabb

23 ára afmæli

Takk allir fyrir afmæliskveðjurnar.

Ég er búin að eiga fínan afmælisdag. Ég og Siggi bökuðum Amerískar pönnukökur a la Maja í morgunmat og byrjaði ég á því að brjóta fyrsta diskinn á heimilinu.;) Svo fórum við í Dansk design center og reyndum svo að finna skó handa mér á strikinu. Svo fórum við í Fisketorvet til að halda leitinni áfram og til að fara á Pizza Hut. Sú ferð varð svolítið misheppnuð, því ég fann enga skó og Pizza Hut var hætt.:cry: En það bjargaðist þegar ég fékk góðan Nixon hamborgara á The presidents í staðinn. Svo í kvöld er fótboltakvöld,jeeiii.:whut: Mjög mikilvægur leikur sko, segir Siggi.:haha:

Ég er búin að láta inn afmælis bumbumyndir inn á  barnaland


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3